Dagleg tannlæknaþjónusta
Við sinnum daglegri tannlæknaþjónustu fyrir alla aldurshópa, hvort sem um er að ræða reglubundna skoðun, hreinsun, tannfyllingar eða meðferð við verkjum. Áhersla er lögð á forvarnir, fræðslu og að byggja upp traust samband við hvern og einn skjólstæðing.
Allir viðskiptavinir njóta góðs af nærveru fjölmargra sérfræðinga hjá Hlýju. Komi upp aðstæður þar sem þörf er á áliti sérfræðings á ólíkum sviðum, þá eru þeir aðgengilegir undir sama þaki. Í því liggur okkar styrkur.
Traust og gott samband
Tannlæknar okkar leggja sig fram við að mynda traust og skapa gott samband við viðskiptavini, enda verða þeir oftar en ekki tannlæknar heilu fjölskyldanna þar sem samstarfið nær til margra ára.
Samband tannlækna og sjúklinga snýst um meira en að bregðast við vandamálum ef og þegar þau koma upp. Við leggjum okkur fram við að veita forvarnir, fræðslu og ráðleggingar um tennur og tannhirðu, mataræði og margt fleira.
Fjölbreytt þjónusta
Í almennri tannlæknaþjónustu felst fjölmargt, svo sem:
- Reglulegar skoðanir
- Kennsla í munn-og tannhirðu
- Ráðleggingar varðandi mataræði
- Ýmsar forvarnir og fræðsla
- Tannhreinsun
- Meðhöndlun margvíslegra tannskemmda og galla í tönnum
- Fegrunartannlækningar
- Og margt fleira