Okkar sérsvið

Sérsvið Hlýju eru tannlækningar barna og hjá okkur er lögð sérstök áhersla á að börn upplifi öryggi og ró í heimsóknum sínum. Allir okkar tannlæknar taka vel á móti börnum og sinna almennum tannlækningum barna. Markmið okkar er að börnunum finnist gaman hjá tannlækni.

Ef þörf er á sérhæfðri meðferð, vísar tannlæknirinn áfram til sérfræðings í barnatannlækningum og þannig tryggjum við rétt þjónustustig á réttum tíma.

Sérhæfðir barnatannlæknar

Þeir tannlæknar á Hlýju sem hafa sérhæft sig í barnatannlækningum (þriggja ára sérnám) eru:

  • Eva Guðrún Sveinsdóttir
  • Lára Hólm Heimisdóttir
  • Magnús J. Kristinsson
  • Sigurður Rúnar Sæmundsson 

Einn tannlæknir Hlýju er nú að sérhæfa sig í barnatannlækningum í Osló og er væntanleg til starfa á ný (eftir þriggja ára sérnám) haustið 2028:

  • Telma Karen Finnsdóttir

Eins og fyrr segir sinna flestir af okkar almennu tannlæknum börnum og í þeim tilvikum þegar þörf er á áliti sérfræðings, þá felst mikið öryggi í að hafa þá undir sama þaki til að veita ráðgjöf. Þessi teymisvinna hefur gefist afar vel.

Fyrsta heimsókn skiptir miklu máli

Við mælum með að fyrsta heimsókn eigi sér stað um tveggja ára aldur.  Afar mikilvægt er að fyrsta heimsókn barns til tannlæknis sé jákvæð og snýst fyrsti tíminn að miklu leyti um að skapa traust.

Við höfum langa reynslu af meðhöndlun barna og beitum ýmsum aðferðum til þess að leggja grunninn að þessu trausti á milli barns og tannlæknis. Móttakan er hönnuð með þarfir barna í huga, við eigum gnótt af límmiðum og verðlaunaskápurinn er sannarlega veglegur! 

Sérmenntaðir barnatannlæknar sinna fyrst og fremst börnum til 18 ára aldurs, en undir þeirra sérgrein falla einnig fullorðnir með sérþarfir, s.s. fötlun, þroskaskerðingu eða aðrar áskoranir, svo sem tannlæknahræðslu.

Sjúkratryggingar

Sjúkratryggingar greiða almennar tannlækningar barna að fullu að undanskildu 3.500 kr. árlegu komugjaldi, að því tilskyldu að barnið sé skráð hjá heimilistannlækni og sjúkratryggt á Íslandi.

Sjúkratryggingar taka þó ekki þátt í greiðslu aðstöðugjalda, sem falla til þegar þörf er fyrir tannmeðferð í svæfingu.