Tannholdslækningar fela í sér greiningu og meðferð á sjúkdómum í tannholdi og stoðvefjum tanna, svo sem tannholdsbólgu og tannplantabólgu. Í meðferð felst fræðsla og leiðbeiningar um munnhirðu ásamt því að meðhöndla tannholdsbólgu ýmist með eða án skurðaðgerð.
Að auki fellur undir sérgreinina ísetning tannplanta og mjúkvefjaaðgerðir sem miða að því að bæta heilsu og útlit tannholds.