Bjartara bros til lengri tíma
Tennur okkar eru mishvítar að upplagi. Eins geta neysluvenjur valdið því að tennur litast, og slit og viðgerðir tanna geta aukið mislitun til muna. Hvíttunarmeðferð tanna í núverandi mynd hefur verið til síðan á níunda áratug síðustu aldar. Hún er skaðlaus tönnum og tannholdi ef rétt er að farið.
Algengasta og oft á tíðum skilvirkasta hvíttunarmeðferðin byggir á notkun sérhannaðra glærra góma sem lýsingarefni er sett í og eigandinn notar samkvæmt fyrirfram ákveðnum leiðbeiningum. Eigandinn getur þá hvíttað tennur sínar eftir þörfum og eigin óskum og haldist tannheilsa góð geta skinnurnar enst í mörg ár eða jafnvel áratugi. Þannig geta skinnur verið frábær fjárfesting í hvítari tönnum til lengri tíma.
Ef skinnur henta ekki er einnig hægt að hvítta tennur með sterkum hvíttunarefnum í tannlæknastól. Nokkrar slíkar heimsóknir gæti þurft til þess að ná viðunandi árangri og oft er þörf á viðhaldsmeðferð síðar ef áhrifin dvína með tímanum.
Nauðsynlegt er að ganga úr skugga um að tannheilsa sé góð áður en hvíttunarmeðferð er hafin. Helstu aukaverkanir tannhvíttunar eru kul og viðkvæmni tanna. Oftast er það vægt eða ekkert, sér í lagi ef veikari efni eru notuð, en það getur hins vegar verið meira þegar sterkari efni eru notuð.
Það er því er mikilvægt að láta tannlækni greina tannheilsu og sögu til þess að unnt sé að spá fyrir um og meðhöndla slík tilfelli. Rétt er að taka fram að plastfyllingar og postulín í tönnum hvíttast ekki, en yfirleitt er auðvelt að laga lit fyllinga að hvítari tönnum að lokinni lýsingarmeðferð.
Hvíttunarmeðferð er oft notuð til þess að:
- Hvítta tennur sem þykja gular að upplagi.
- Hvítta tennur sem hafa gulnað og passa ekki lengur við lit eldri fyllinga eða postulínskróna.
- Hvítta tennur sem undirbúningsmeðferð fyrir umfangsmeiri tannlækningameðferð.
- Minnka eða útrýma að fullu ummerkjum um glerungsgalla.
- Hvítta tennur sem hafa dökknað í kjölfar tannáverka.