Nákvæmar lagfæringar á lit og lögun

Plastfyllingarefni eru falleg og fást í öllu litrófi tannanna. Þau eru slitsterk, mislitast seint og með góðri færni má stækka og breyta tönnum með þeim á nær ósýnilegan máta.

Plastfyllingar eru frábær leið fyrir fólk sem hefur lengi hugsað sér að breyta formi tanna sinna, en treystir sér ekki í varanlegri meðferðir strax.

Margskonar fegrunarmeðferðir er unnar með plastfyllingarefnum, þar á meðal:

  • Uppbyggingar óvenju lítilla tanna (oft svokallaðar „tapptennur“)
  • Síkkun framtanna vegna slits
  • Lokun bila
  • Viðgerðir á glerungsgöllum
  • Viðbætur tanna til að gera þær sýnilegri
  • Viðgerðir tanna eftir brot og áverka
  • Fegrun á myndunargöllum