Stofan
Hjá Hlýju starfa tannlæknar og sérfræðingar á helstu sviðum tannlækninga, samankomnir undir einu þaki. Við erum ein stærsta tannlæknastofa landsins og í því felst styrkur okkar.
Hjá okkur er teymisvinna í fyrirrúmi, þar sem sérþekking og samvinna tryggja að hver einstaklingur fái alhliða meðferð, sniðna að persónulegum þörfum. Við reynum eftir fremsta megni að veita alla meðferð hjá okkur, hvort sem um ræðir almennar tannlækningar, skurðaðgerðir eða aðrar sérhæfðar meðferðir, með það að markmiði að veita heildræna meðferð á einum stað. Í þeim tilfellum sem við teljum þörf fyrir aðkomu sérfræðings utan stofunnar, aðstoðum við skjólstæðinga okkar við að koma málum sínum í sem bestan farveg.
Hlýja leggur áherslu á að skapa öruggt og þægilegt umhverfi fyrir alla með hlýju viðmóti, virðingu og trausti að leiðarljósi.
Saga Hlýju
Saga Hlýju hófst árið 1996 þegar tannlæknirinn Sigurður Rúnar Sæmundsson stofnaði barnatannlækningastofu í Einholti. Með ástríðu fyrir velferð barna og sterka framtíðarsýn að leiðarljósi byggði hann upp trausta þjónustu sem flutti í Glæsibæ árið 2008.
Frá árinu 2015 hefur stofan vaxið ört, bæði í umfangi og sérþekkingu. Árið 2021 flutti Hlýja í stærra og nútímalegra húsnæði á 2. hæð í turninum í Glæsibæ og hefur síðan einnig opnað
starfsstöð í Vestmannaeyjum.
Í dag starfa á þriðja tug tannlækna hjá Hlýju, þar á meðal sérfræðingar í barnatannlækningum, tannfyllingum, tannsjúkdómafræði og fleiri greinum. Þverfaglegt samstarf, samheldni og hlýlegt andrúmsloft hafa ávallt verið hornsteinar starfseminnar og eru það enn í dag.
Teymið okkar
Hjá Hlýju starfar einvalalið sem hefur það markmið að þjónusta þig á sem bestan hátt og leysa úr þeim vandamálum sem kunna að koma upp.