Ein stærsta sérgrein tannlækninga

Tann-og munngervalækningar er ein stærsta sérgrein innan tannlækninga og snýr í stórum dráttum að smíði tanngerva fyrir einstaklinga sem vantar tennur eða hluta þeirra.

Einnig kemur sérgreinin að uppbyggingu niðurbrotinna tanna t.d. vegna genagalla, glerungseyðingar eða tannskemmda. Þessi sérgrein tryggir þannig bætta tyggigetu og virkni, bætt útlit og aukna vellíðan skjólstæðinga með meðferð sem stenst kröfur nútímans um gæði og þægindi.

Almennir tannlæknar Hlýju sinna flestir tann-og munngervalækningum að einhverju marki, en sé um viðameiri og flóknari tilfelli að ræða, geta þeir leitað til sérfræðinga Hlýju á sviðinu eða vísað áfram til þeirra.

Sérhæfðir tann- og munngervalæknar

Sá tannlæknir Hlýju sem hefur sérhæft sig í tann-og munngervalækningum (þriggja ára sérnám) eru: 

  • Unnur Flemming Jenssen

Að auki starfar hjá Hlýju sérfræðingur í tannfyllingu og tannsjúkdómafræði (þriggja ára sérnám), sem kemur inn á mörg svið tann-og munngervalækninga, auk fegrunartannlækninga:

  • Vilhelm Grétar Ólafsson