Tannholslækningar (rótfyllingar)
Tannholslækningar er sérgrein tannlækninga sem greinir og meðhöndlar sjúkdóma í kviku tannar og vefjum í kringum rætur þeirra, meðferð slíkra sjúkdóma felst oftast í því að rótfylla tönn.
Margar rótfyllingarmeðferðir hefjast þegar fólk leitar til tannlæknis vegna tannverks. Hinvegar eru flestir sjúkdómar í tannkviku og aðliggjandi vefjum einkennalausir.
Djúpar tannskemmdir og tannáverkar eru algengustu ástæður þess að sýking myndast í kviku tannar og aðliggjandi vefjum.
Markmið rótfyllingarmeðferðar er að geta haldið tönn í munni til lengri tíma (helst ævilangt), að tönnin verði einkennalaus og án ummerkja um sýkingu eða bólgu. Stundum eru ummerki um sýkingu frá tönn sem áður hefur verið rótfyllt.
Að meðhöndla sýkingar við rótfylltar tennur felur oftast í sér að endurgera rótfyllingarmeðferðina (endurrótfylling). Í sumum tilfellum getur verið æskilegra að meðhöndla sjúkdóminn með minniháttar skurðaðgerð (rótarendaaðgerð) til að meðhöndla sýkinguna með því sama markmiði að viðhalda heilbrigðri tönn án einkenna.
Einn tannlæknir Hlýju er nú að sérhæfa sig í tannholslækningum í Gautaborg og er væntanlegur til starfa á ný (eftir þriggja ára sérnám) haustið 2026:
- Hjalti Þórðarson